top of page

NORCOM sér um kerfisbundinn frágang í nýju fjölnota íþróttahúsi fyrir KR

  • 22 hours ago
  • 1 min read

Ákveðið hefur verið að NORCOM muni sjá um ráðgjöf um kerfisbundinn frágang vegna nýs 6.700m2 fjölnota íþróttahúss KR í Vesturbæ Reykjavíkur. Í húsinu verður gervigrasvöllur, minni íþróttarými, skrifstofurými og annað sem tengist starfsemi hússins.


Áætluð verklok eru 2027 en NORCOM mun sjá um ráðgjöf og eftirlit með tæknikerfum í húsnæðinu sem verða fyrsta flokks og munu veita iðkendum og áhorfendum góða upplifun.


Enn á ný hefur Umhverfis- og Skipulagssvið Reykjavíkur treyst NORCOM fyrir því ábyrgðahlutverki að bæta útkomu í flóknum byggingarframkvæmdum með því að nýta aðferðafræði kerfisbundins frágangs. Það er virðingavert að þora að gera hlutina öðruvísi og teljum við hjá Norcom það tímaspursmál þangað til kerfisbundinn frágangur verður staðalbúnaður í öllum opinberum verkefnum!



 
 

Hafðu samband

Hafðu samband ef þú hefur spurningar eða fyrirspurnir

Staðsetning:

Kringlan 7, 103 Reykjavík

Iceland

Sími

+354 848 8596

Netfang:

  • LinkedIn

© 2026 by Norcom.

bottom of page