Raki í yleiningum – finnum hann áður en hann veldur skemmdum
Notkun yleininga við nýframkvæmdir á skrifstofum, vöruskemmum og gagnaverum er sífellt að aukast enda eru þær eru hagkvæmar og auðveldar í uppsetningu. Víðsvegar um landið má sjá þær notaðar í hinum ýmsu verslunar- og iðnaðarhúsnæðum.
Norrænt loftslag, og ekki síst íslenskt, veldur miklu álagi á veðurkápu bygginga. Úrkoma, hátt rakastig og hvassviðri geta gert erfitt að verja einingarnar fyrir raka við flutning, geymslu eða uppsetningu. Síðar, getur vatn einnig komist inn um samskeyti, flasningar eða gegnumtök.
Sérstaða yleininga
Building Science Corporation skilgreinir fjögur meginatriði sem þarf að hafa stjórn á í útveggjum og raðar þeim eftir mikilvægi (Lstiburek, The Perfect Wall, BSI-001):
1. Regni
2. Lofti
3. Loftraka
4. Varma
Í yleiningum veitir málmyfirborðið vörn gegn regni, lofti og loftraka á meðan steinullarkjarninn ver gegn varmatapi. Fyrir stakar einingar virkar þetta mjög vel. Helsti veikleikinn kemur fram við samskeyti, flasningar, gegnumtök og enda, þar sem einingar tengjast hvor annarri eða öðrum byggingahlutum.
Tveir eiginleikar yleininga gera raka sérstaklega erfiðan viðureignar ef vatn kemst inn í þær:
Takmarkað frárennsli. Yleining er þétt byggingarefni án afrennslis (Commissioning Building Enclosure Notebook, p. 290). Engin frárennslisop eru til staðar innan eininganna til að veita vatni burt sem kann að komast inn.
Takmaðari möguleikar til loftþurrkunar. Hönnun yleininganna er slík að málmyfirborðið, sem er rakasperran, er beggja vegna við steinullarkjarnann. Building Science varar við notkun á slíkri tvöfaldri rakasperru einmitt vegna þess að byggingarhlutar þurfa að geta þornað í allavega eina stefnu (BSD-106, Understanding Vapor Barriers, p. 4). Sá raki sem kemst inn í yleiningu, hefur því gott sem enga leið út.
Hvernig raki finnst í yleiningunum
Það er óþarfi að bíða eftir ryðblettum. Leiðbeiningar National Institute of Building Sciences, NIBS Guildeline 3 (Exterior Enclosure Technical Requirements for the Commissioning Process, Annex U) lýsa þeim aðferðum sem beita má í framkvæmdum sem saman mynda heildstæða eftirlitsáætlun með raka í yleiningum.
Fyrst er skoðun með hitamyndavél. Hitamyndavél mælir innrauða geislun frá yfirborði byggingar við aðstæður sem eru skilgreindar í ASTM C1060 (nægur hitamunur innan- og utanhúss og einsleitt hitastig innandyra). Mælingin sýnir hitastigsdreifingu á yfirborðinu og frávik í henni verða þannig sýnileg, jafnvel á stöðum þar sem annars væri erfitt að finna þau. Rakt eða blautt byggingarefni getur haft aðra varmaeiginleika en þurrt efni og því komið fram sem frávik á hitamynd. Slíkt frávik gefur ástæðu til nánari skoðunar.
Næst eru frávik sannreynd með rakamælingu. Þau svæði sem hitamyndirnar gáfu til kynna að væru blaut eða rök eru mæld með rakanema. Slíkir nemar eru gjarnan kvarðaðir fyrir ákveðið byggingarefni, s.s. timbur, steypu eða gips. Þó svo að þeir séu notaðir á önnur byggingarefni en þeir eru kvarðaðir fyrir þá geta þeir gefið góða vísbendingu um hvort að byggingarefni sé þurrt eða blautt. Til að fá áreiðanlegar mælingar kann að vera nauðsynlegt að bora gat í gegnum yfirborðið til að geta tekið mælingu beint úr byggingarefninu.
Að lokum er sjónskoðun. Blettir, ryð eða önnur merki um að vatnsleki kunni að hafa verið til staðar sýna hvar skal leitað að raka.
Gerðu þetta að hluta af kerfisbundnum frágangi
Besti tíminn til að finna raka er á meðan framkvæmdum stendur, fyrir afhendingu, ekki þegar skemmdir verða sýnilegar. Eftirlit með hitamyndavél og rakamælingum ætti að vera hluti af kerfisbundnum frágangi á veðurkápunni þar sem sérstök áhersla er á eftirlit með:
- Samskeytum milli eininga,
- Botn- og endaflasningar,
- Gegnumtök,
- Svæði þar sem vatn getur safnast fyrir
Við hjá Norcom sérhæfum okkur í kerfisbundnum frágangi veðurkápa við íslenskar aðstæður og skiljum hvernig veðuraðstæður hafa áhrif á yleiningar. Við aðstoðum við að skipuleggja og framkvæma rakaeftirlit í yleiningum og skoðum sérstaklega þau svæði sem eru líklegust til að leka til þess að tryggja að útveggir haldist þurrir og uppfylli kröfur áður en byggingin er afhent.
Vísun
J. Lstiburek, The Perfect Wall (BSI-001); Hockey Pucks and Hydrostatic Pressure (BSI-057); Punched Openings (BSI-104); Understanding Vapor Barriers (BSD-106). Building Science Corporation.
US EPA, Moisture Control Guidance for Building Design, Construction and Maintenance.
NIBS Guideline 3, Exterior Enclosure Technical Requirements for the Commissioning Process, Annex U.
Commissioning Building Enclosure Assemblies and Systems (course notebook).


