Urðahvarf 16
- Mar 23
- 2 min read
Updated: Mar 24
Eftir að hafa unnið með kröfulýsingar fyrir kerfisbundinn frágang í heilsugæslum fyrir FSRE, bauðst NORCOM að taka þátt í verkefni með GG verk, þar sem fasteignafélagið Súlur innréttaði Urðahvarf 16 sem sólahringshjúkrunarþjónustu. Heilsuvernd er þar nú valin sem rekstraraðili.
Gunnlaugur Trausti Vignisson hjá NORCOM ehf var ráðinn sem virknistjóri verktaka. Verktakinn var GG verk með Hrein Sigurðsson sem verkefnastjóra og byggingarstjóra.
Rúmlega 15 ára starfsreynsla Gunnlaugs í að útbúa takáætlanir og hönnunarstjórn í alútboðum reyndust GG dýrmæt.
14 mánuðum seinna, yfir 40 hönnunarfundum, ótal verkfundum og skipulagðri framleiðslu er byggingin tilbúin til notkunar, afhent til verkkaupa og samþykkt af FSRE.
Kerfisprófanir og virkniprófanir og magninnstillingar eru gerðar.
NORCOM ehf fengu Steinar frá Norsk VVS merking í lið með okkur til að magninnstilla hita og kælikerfi.
Starfsmenn NORCOM ehf hafa magninnstilt loftræsikerfi í samvinnu með Kristjáni Flokasyni hjá Iðnaðartækni og prófun í fullum mælikvarða verður framkvæmd á næstu vikum.
Verkefnið hefur sannað mikið fyrir marga:
Þegar við höfum skýrar skýra mynd af hvernig bygging á að virka, bæði fyrir notenda og verkkaupa, þá gengur hönnun í stjórn alverktaka hraðar fyrir sig og hönnunargögn skila sér afhærri gæðum á verkstað.
Utanumhald og góð taktáætlun styttir ekki bara byggingartíma, aðferðarfræðin gefur einnig betri utanumhald um gæðastjórnun og gefur okkur möguleika á að stilla hönnun á meðan framkvæmdir standa yfir án þess að missa stjórn á framvindu.
Það er hægt að prófa virkni kerfa, magninnstilla og tryggja gæði tæknikerfa fyrir afhendingu. Þrátt fyrir mjög hraða framleiðslu.
Til að ná slíkum árangri þarf verkefnið að vera skipað leikmönnum sem vilja skila árangri í öllum stöðum. Allt frá verkkaupa, notendum, verktaka, arkitekt, hönnuðum, ráðgjöfum og undirverktökum. Hér hafa allir haft sameiginlegan skilning á verkefninu og verkferlinu. Án þess að hafa slíkt lið hefði þetta ekki gengið.











