top of page

Nýtt verkefni NORCOM fyrir Reykjavíkurborg!

  • 22 hours ago
  • 1 min read

Við hjá Norcom erum glöð að tilkynna að Umhverfis- og Skipulagssvið Reykjavíkur hefur samþykkt tilboð okkar um rágjöf um kerfisbundinn frágang við leikskólann Sæborg í Vesturbæ Reykjavíkur.


Við Sæborg stendur til að reisa nýja fjögurra deilda 1100m2 viðbyggingu með fjölnota- og starfsmannarými ásamt því að fara í ýmsar endurbætur á núverandi húsnæði.

Hönnunarvinna hefst fljótlega og áætluð verklok eru 2027. Norcom mun starfa fyrir hönd Reykjavíkurborgar, tryggja að áætlanir um hönnun, framkvæmd og gæði á tækni- og virknikerfum standist allar kröfur.


Starfsmenn Norcom hafa áratugareynslu í að nýta aðferðarfræði kerfisbundins frágangs til að fækka göllum í byggingaframkvæmdum og mun það án efa nýtast verkefninu og íbúum Reykjavíkur.


Við þökkum Reykjavíkurborg fyrir að sjá tækifærin sem felast í því að nýta sér aðferðir kerfisbundins frágangs, og traustið sem Norcom er sýnt til að framfylgja þeirri sýn.



 
 

Hafðu samband

Hafðu samband ef þú hefur spurningar eða fyrirspurnir

Staðsetning:

Kringlan 7, 103 Reykjavík

Iceland

Sími

+354 848 8596

Netfang:

  • LinkedIn

© 2026 by Norcom.

bottom of page